Tjaldstæðið Staðarborg
Staðsetning(Bæjarfélag): Breiðdalsvík.
Vefsíða: www.stadarborg.is

Tjaldsvæðið er í um 625km fjarlægð frá Reykjavík og 100km frá Seyðisfirði þar sem Norræna (Smyril Line) leggur að höfn.

Úr Breiðdal er stutt í óbyggðir en á um 3 klst. má komast að Snæfelli í vestri og Lóni í suðri og enn styttra er í fjalla- og gönguleiðir í Hamarsfirði eða á Öxi. Dýra- og fuglalíf er fjölbreytt í Breiðdal og möguleikar á gæsa- og rjúpnaveiði. Þar eru einnig gjöfular laxveiðiár og silungsvötn.

Breiðdalsá og Tinnudalsá eru þekktar laxveiðiár og í ós Breiðdalsárinnar má renna fyrir bleikju.

Afþreying er fjölbreytt á svæðinu og við allra hæfi í fögru umhverfi. Spennandi gönguleiðir í kring og sundlaug í næsta nágrenni og útsýnissiglingar.

Í nágrenni eru bátsferðir um eyjarnar og skoða seli fugla og hvali einnig er hægt að fá lánaða báta fyrir börnin til að sigla á tjörninni gegn vægu verði.

Opnunartími:
Opið frá maí til september.
Verð:
Verð yfir nótt pr. fullorðinn: 400kr.
Verð yfir nótt pr. barn yngri en 12 ára: 200kr.

Reglur tjaldsvæðis:
Opinn eldur er bannaður með öllu á tjaldsvæðinu. Hundar leyfðir í ól.

Þjónusta og afþreying á staðnum:
Opinn eldur bannaður Salerni Rennandi vatn Sturtur Eldunaraðstaða Hundar leyfðir Hótel/Gistiheimili Svefnpokapláss Café Veitingastaður Hestar Íþróttavöllur 

Þjónusta og afþreying í nágrenni:
Opinn eldur bannaður
Bensínstöð
Veiði
Sund
Gönguleið
Skotveiði
Bátsferðir
Útsýni
Fallegt útsýni