|
Staðsetning(Bæjarfélag): Möðrudalur. Vefsíða: www.fjalladyrd.is
Möðrudalur er miðja vegu milli Egilsstaða og Mývatns við veg 901. Tjaldstæðið á Möðrudal býður ykkur velkomin í fjalladýrð og öræfakyrrð á hæsta byggða bóli á Íslandi. Tjaldstæðið er búið öllum helstu þægindum fyrir tjaldgesti jafnt sem húsbílaeigendur; Rafmagn,losun ferðasalerna, eldunaraðstaða, þvottaaðstaða, sturtur, eldstæði, sparkvöllur, frispýgólf og stikaðar gönguleiðir.
Fjallakaffi er lítið kaffi og veitingahús í torfbæjarstíl þar sem einnig er hægt að fá helstu nauðsynjar tjaldbúans.
Bensín/Diesel sala í torfbæ – komið og upplifið skemmtilegri áfyllingu á bílinn!”
Sumarið 2008 bjóðum við næturgestum Möðrudals uppá GEITA KVÖLDFERÐIR. Þá höldum við í þeirra heimkynni sem eru í hinu tilkomumikla Kjalfelli skammt frá bænum, skoðum hellinn þeirra og fleiri náttúrufyrirbæri og gefum geitahjörðinni brauð.
Opnunartími: Opið frá júní til október.
Verð: Verð yfir nótt pr. fullorðinn: 750kr.
|