|
Staðsetning(Bæjarfélag): Grímsnes. Tjaldsvæðið er við Félagsheimili sjómanna í Hraunborgum Grímsnesi. Ekið er um Kiðjabergsveg.
Á staðnum: þjónustuhús upphitað salerni, og snyrtiaðstaða einnig er útivaskur og aðstaða þar í kring. Tjaldstæðið er alveg við félagsheimilið þar sem er sundlaug, vaðlaug heitir pottar og eimbað ( 350 kr fullorðnir 175 kr. börn ). Einnig er minigolf 13 brautir ( 275 kr. manninn), fótboltavöllur, Körfuboltaaðstaða og leikvöllur. Síðan er 9 holu golfvöllur,par 3 (1100 kr flatargjald). Allt í göngufæri við tjaldstæðið. Við erum einnig með þvoið sjálf þjónustu ,þvottavél og þurrkara. Og í félagsheimili er setustofa með sjónvarpi og stofa með billiardborði og fl.
Einnig tökum við á móti hópum, höfum grill á góðri verönd og er þá hægt að semja um margs konar pakka.
|